Heimasíða fyrir Sauðafellsvatn á Landmannaafrétti hefur verið opnuð formlega og er nú hægt að kaupa veiðileyfi. Sala veiðileyfa fer fram á netinu í gegnum heimasíðuna saudafellsvatn.is.
Á myndinni sést stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar þegar formaður stjórnar opnaði hina nýju síðu formlega í dag, sunnudaginn 26. maí 2019. ( Á myndinni eru talið frá vinstri: Valtýr Valtýsson, Eiður Kristinsson, Erlendur Ingvarsson, Valdimar K. Jónsson og Einar Brynjólfsson)
Vala Rún Valtýsdóttir og Valtýr Bjarki Valtýsson sáu um hönnun og uppsetningu síðunnar.