Fréttir2019-05-26T18:37:59+00:00

Sala veiðileyfa í Sauðafellsvatni sumarið 2023

Búið er að opna fyrir sölu veiðileyfa í Sauðafellsvatni sumarið 2023.  Veiði hefst 18. júní og lýkur 18. september.  Verð á veiðileyfi er óbreytt frá því síðasta sumar, eða kr. 5.000 fyrir eina stöng í einn dag.  Hámarksfjöldi stanga í vatninu er 5 stangir á dag.

05/02/2023|

Heimasíða Sauðafellsvatns opnuð formlega.

Heimasíða fyrir Sauðafellsvatn á Landmannaafrétti hefur verið opnuð formlega og er nú hægt að kaupa veiðileyfi.  Sala veiðileyfa fer fram á netinu í gegnum heimasíðuna saudafellsvatn.is.

Á myndinni sést stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar þegar formaður stjórnar opnaði hina nýju síðu formlega í dag, sunnudaginn 26. maí 2019. ( Á myndinni eru talið frá vinstri: Valtýr Valtýsson, Eiður Kristinsson, Erlendur Ingvarsson, Valdimar K. Jónsson og Einar Brynjólfsson)

Vala Rún Valtýsdóttir og Valtýr Bjarki Valtýsson sáu um hönnun og uppsetningu síðunnar.

 

26/05/2019|