Sala veiðileyfa í Sauðafellsvatni sumarið 2023
Búið er að opna fyrir sölu veiðileyfa í Sauðafellsvatni sumarið 2023. Veiði hefst 18. júní og lýkur 18. september. Verð á veiðileyfi er óbreytt frá því síðasta sumar, eða kr. 5.000 fyrir eina stöng í einn dag. Hámarksfjöldi stanga í vatninu er 5 stangir á dag.
Heimasíða Sauðafellsvatns opnuð formlega.
Heimasíða fyrir Sauðafellsvatn á Landmannaafrétti hefur verið opnuð formlega og er nú hægt að kaupa veiðileyfi. Sala veiðileyfa fer fram á netinu í gegnum heimasíðuna saudafellsvatn.is.
Á myndinni sést stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar þegar formaður stjórnar opnaði hina nýju síðu formlega í dag, sunnudaginn 26. maí 2019. ( Á myndinni eru talið frá vinstri: Valtýr Valtýsson, Eiður Kristinsson, Erlendur Ingvarsson, Valdimar K. Jónsson og Einar Brynjólfsson)
Vala Rún Valtýsdóttir og Valtýr Bjarki Valtýsson sáu um hönnun og uppsetningu síðunnar.